Skilmálar

Jötunn vélar ehf - Skilmálar

Almennt
Jötunn vélar ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, 
rangrar lagerstöðu og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir
fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager
mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Pöntunum er almennt dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og
flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar, hér má sjá reiknivél Íslandspósts:
http://www.postur.is/desktopdefault.aspx/tabid-187/. Jötunn vélar ehf ber samkvæmt þessu enga
ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún
er send frá Jötunn vélum ehf
til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki
notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara
er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er
afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að
varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast
hafið samband við
Jötunn vélar ehf með spurningar.

Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur
upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir
neinum kringumstæðum.

DalPay Retail er endursöluaðil fyrir Jonbonda.is og á
kreditkortayfirliti þínu mun standa dalpay.is +18778657746