Brinsea útungunarvélar á leið í hús

Við erum nú umboðsaðilar fyrir Brinsea útungunarvélar á Íslandi og er fyrsta sending á leið í hús. Brinsea eru leiðandi í heiminum í framleiðslu á útungunarvélum, en þessi breski framleiðandi selur um allan heim. Fáanlegar eru vélar fyrir 7-384 egg. Verð og úrval má sjá í vefverslun okkar hér til hliðar undir "Hænsnavörur" og þar fyrir neðan undir "útungunarvélar og tæki".